Staða súnnía dregur úr bjartsýni 31. janúar 2005 00:01 "
Hryðjuverkamennirnir vita nú að þeir geta ekki sigrað," sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra írösku bráðabirgðastjórnarinnar, þegar hann fagnaði kosningunum til írasks stjórnlagaþings og hvatti landsmenn til að sameinast um uppbyggingu landsins. Þrátt fyrir bjartsýni Allawi urðu margir til að lýsa áhyggjum. Þjóðarleiðtogar heims fögnuðu kosningunum í gær en lýstu margir hverjir áhyggjum af því hversu lítil kjörsókn súnní-múslima var. Engar tölur liggja enn fyrir um kjörsókn þeirra en ljóst er að hún var lítil. Starfsmenn yfirkjörstjórnar sögðu kosningaþátttöku súnní-múslima hafa verið litla en meiri en búist hefði verið við. Abdúllah Jórdaníukonungur syrgði það hins vegar í viðtali að þátttaka þeirra hefði verið minni en vonast hefði verið til og embættismaður í bandaríska sendiráðinu lýsti áhyggjum af því að kjörsókn súnnía hefði verið það lítil að hætta væri á að kosningarnar skorti lögmæti í augum þeirra. Súnní-múslimar sátu heima hvort tveggja vegna þess að trúarleiðtogar þeirra hvöttu þá til að hunsa kosningarnar og eins vegna ótta við hryðjuverkaárásir. Stjórnlagaþingið sem kosið var um á sunnudag á að setja Írak þær reglur og skipulag sem því verður stjórnað eftir í framtíðinni. Vegna lítillar kosningaþátttöku súnnía hafa þeir minni áhrif á stjórnlagaþinginu en ella nema fundin verði leið til að tryggja þeim aðkomu þrátt fyrir litla kosningaþátttöku. Ekki er hægt að gera fulla grein fyrir því hvað varð um fjárframlög til íraskra ráðuneyta að andvirði 550 milljarða króna. Frá þessu greindi bandarísk eftirlitsstofnun. Bandaríska hernámsstjórnin reiddi féð af hendi til íraskra ráðuneyta en engar eftirlitsstofnanir voru til staðar til að fylgjast með því hvað varð um féð. Al-Jazeera sjónvarpsstöðin sýndi í gær myndband sem íraskir vígamenn sögðu sýna hvar bresk herflutningaflugvél var skotin niður á sunnudag. Tíu létust þegar flugvélin fórst en ekki hefur verið staðfest hvort hún hrapaði eða var skotin niður.
Erlent Fréttir Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Erlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Trump undirritaði samkomulag við Írani Erlent Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Erlent Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Erlent Fleiri fréttir Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Virðast ekki vilja takmarka sig við tíu milljónir Sjá meira
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent