Innlent

Samstarf í vísindum og tækni

Forseti Indlands átti fund með forseta Íslands að Bessastöðum í dag og lögðu báðir forsetar mikla áherslu á samstarfsmöguleika landanna tveggja á sviði vísinda og tækni. Dr. Avul Pakir Jainulabdeen Abdul Kalam var kjörinn forseti Indlands fyrir tæpum þremur árum. Hann er sjötíu og þriggja ára flugvélaverkfræðingur og afar virtur vísindamaður í heimalandinu. Forsetahjónin íslensku tóku á móti honum að Bessastöðum í morgun og börn úr Víðistaða- og Öldutúnsskóla veifuðu fánum beggja landa. Forsetinn tók sér góðan tíma í að heilsa upp á börnin en hélt að því loknu til hálfrar klukkustundar fundar með Ólafi Ragnari Grímssyni. Þar ræddu þeir einkum möguleika landanna á samstarfi í lyfjaþróun og -framleiðslu, orkuvinnslu og um viðvörunarkerfi vegna aðsteðjandi jarðskjálfta. Forsetinn hefur miklar væntingar um framtíð þjóðar sinnar og er markmið hans að Indland komist í hóp þróaðra ríkja eftir fimmtán ár. Fréttamaður innti hann eftir þeirri tilvitnun, sem að sögn er hans eftirlætistilvitnun, að Indverjar eigi að hugsa eins og milljarðaþjóð, ekki milljónaþjóð, og spurði hvaða ráð hann hefði til að breyta þeim hugsunarhætti. Forsetinn svaraði því til að Indverjar séu einn milljarður og 540 milljónir af þeim, eða 54% þjóðarinnar, séu innan við 25 ára. Í landinu byggi því mikill æskuþróttur og hann telur að ef honum takist að koma því á framfæri að sá þróttur sé mjög mikilvægur geti Indverjar hugsað stórt. „Ef við hugsum stórt verður þjóðin mikil,“ sagði dr Kalam. Og forsetinn sagðist hafa lesið í Íslendingasögunum í gær og þar hafi hann séð könnuði. „Hugsið stórt, þá fylgir þjóðin á eftir,“ sagði hann. Dagskrá heimsóknarinnar ber áhugamálum forsetans vitni. Hann fór meðal annars eftir hádegið og lagði hornstein að nýrri byggingu lyfjafyrirtækisins Actavis en síðan fundaði hann með jarðvísindamönnum og stúdentum við Háskóla Íslands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×