Vinstri grænir ósammála 14. ágúst 2005 00:01
Það hriktir í stoðum R-listans. Borgarfulltrúi Vinstri-grænna telur hann einu leiðina til að hindra valdatöku Sjálfstæðisflokksins í borginni, og segist aldrei munu standa að samþykkt sem leiði það af sér. Framsókn og Samfylking munu vera sátt við þá tillögu sem lá fyrir en vinstri-grænir geta ekki sætt sig við hana - í það minnsta ekki allir. Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi, lýsir þeirri skoðun sinni í Morgunblaðinu í dag að R-listinn sé eina leiðin fyrir vinstri-græna til að koma sjónarmiðum og stefnumálum sínum á framfæri. Án R-listans blasi við stjórnarandstaða eða samstarf við Sjálfstæðisflokkinn, sem Björk telur útilokað. Árni Þór Sigurðsson, samflokksmaður Bjarkar, er henni ósammála og sagði í samtali við fréttastofuna að það væri veruleg einföldun að láta sem þetta væru einu kostirnir. Ekkert væri því til fyrirstöðu að R-lista flokkarnir gengju til samstarfs að loknum kosningum þó að þeir biðu ekki sameiginlega fram. Dagur Snær Sævarsson, sem sat í viðræðunefndinni fyrir hönd Vinstri-grænna fagnar því að störfum hennar sé lokið í pistli á múrnum punktur is. Það þýði væntanlega endalok R-listans og Vinstri-grænir geti því loksins sýnt hvað í þeim býr í Reykjavík. Heimildir fréttastofunnar herma að klofningur sé innan flokksins, að nokkrir borgarfulltrúar séu reiðubúnir að yfirgefa flokkinn og ganga til R-lista samstarfs með Framsókn og Samfylkingu. Björk vísar tali um klofning á bug. Björk telur mikilvægast að félagshyggjuöfl verð áfram við völd í borginni og haldi núverandi stefnu áfram. Og hún segir að ef ekki verði af samstarfi R-lista flokkanna þá sé það ávísun á það að Sjálfstæðisflokkurinn nái völdum í borginni. Hún segist alls ekki taka þátt í slíkri ákvörðun. Hún sagði að einnig Vinstri grænir verði að taka ákvörðun á fundi á morgun. Hún segir nauðsynlegt að festast ekki í ákveðnum hugmyndum og að hægt sé að útfæra lausn þannig að allir séu sáttir. Niðurstaða hennar er ljós því hún segir að Reykvíkingar eigi það skilið að R-lista flokkarnir starfi áfram.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira