Koma ekki á óvart 14. ágúst 2005 00:01
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir fréttir af endalokum R-listans síst orðum auknar og ekki koma á óvart. Björn gagnrýnir R-listann harðlega í pistli á heimasíðu sinni. "R-listinn er hættur að snúast um annað en útdeilingu á völdum, hugmyndafræðilegt inntak hans er ekkert og stjórn hans á málefnum Reykjavíkurborgar er sorglegt dæmi um, hvernig fer, þegar hver höndin er upp á móti annarri og allir eru með hugann við að skara eld að eigin köku," segir Björn í pistli sínum. Björn segir nú komið að þeim punkti að það að taka ekki af skarið skaði trúverðugleik allra sem láti sem það sé unnt að blása nýju lífi í R-listann. "Ég er mest hissa á því hversu lengi R-lista flokkarnir telja sér sæma að halda þessum pólitíska hráskinnaleik áfram," segir Björn. "Björn Bjarnason hefur skrifað eins um R-listann síðan listinn varð til, á meðan hafa borgarbúar hins vegar veitt okkur traust," segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-lista. Stefán Jón segir enn fremur engan halda öðru fram en að brugðið geti til beggja vona um framtíð R-listans. Málið sé komið til félaganna í flokkunum sem að R-listanum standa.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira