Bíó og sjónvarp

Leikari / leikkona í aðalhlutverki:

Björn Hlynur Haraldsson - ReykjavíkurnæturBjörn sýnir hressilega takta og á frábæra spretti í hlutverki Ara Ólivers í hinum ýmsu uppátækjum þáttanna. Fjölbreytilegur leikur í gamni og alvöru.

FRAMLEIÐANDI: Sögn ehf

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Agnar Jón Egilsson

Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir - StelpurnarGuðlaug sýnir okkur hverja konuna af annarri. Við þekkjum þær allar, hrífumst með og skellihlæjum að eðlislægum gamanleik hennar.

FRAMLEIÐANDI: Storm, Magnús V. Sigurðsson og Kristinn Þórðarson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Óskar Jónasson

Ritstjóri HANDRITS smíða: Sigurjón Kjartansson

Ilmur Kristjánsdóttir - StelpurnarIlmur galdrar fram kostulegt persónusafn og kemur sífellt á óvart. Áhrifaríkur gamanleikur, án þess að verða nokkurn tímann áreynslukendur.

FRAMLEIÐANDI: Storm, Magnús V. Sigurðsson og Kristinn Þórðarson

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Óskar Jónasson

Ritstjóri HANDRITS smíða: Sigurjón Kjartansson

Nicolas Bro - Voksne MenneskerSannfærandi persónusköpun á unga manninum sem ætlar að verða knattspyrnudómari. Heillandi leikur þar sem gamansemin sprettur af einlægni en vekur um leið samúð áhorfandans.

FRAMLEIÐANDI: Nimbus Film / co-prod. Zik Zak

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Dagur Kári

HANDRIT: Dagur Kári & Rune Schjott

Þórunn Clausen - ReykjavíkurnæturÞórunn skapar bráðskemmtilega persónu sem sveitastúlkan Dóra í borginni.

Einlæg og heilsteypt túlkun sem nær yfir allan tilfinningaskalann borin uppi af miklu fjöri og persónutöfrum.

FRAMLEIÐANDI: Sögn ehf

STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Agnar Jón Egilsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×