Greining: Lúðueldi 15. september 2005 00:01
Fiskey ehf. mun á næstu mánuðum loka lúðueldisstöð sinni í Þorlákshöfn. Þá verður ein slík stöð eftir en Silfurstjarnan er með áframeldisstöð í Axarfirði. Lúðueldi hefur farið stigvaxandi hér á landi og nú er svo komið að jafnmikið er til af villtri lúðu og eldislúðu. Hvernig fer lúðueldi fram? Á sérstakri klakfiskastöð eru hrognin kreist úr lúðunni og því næst eru þau frjóvguð á seiðastöð en eftir fjórtán daga eru hrognin orðin að svokallaðri kviðpokalirfu. Einum og hálfum mánuði eftir hrygningu er svo farið að fæða lúðuseiðin. Í Noregi, Færeyjum, Skotlandi og Hjaltlandseyjum fer lúðueldi fram í eldiskvíum en aðstæður til þess hér á landi eru fremur óhagstæðar þar sem firðir eru óvarðir fyrir úthafi og óstöðugleiki auðveldlega sett strik í reikninginn. Því er frekar notast við eldisker hér á landi. Lúðueldi á Íslandi Rannsóknir með lúðueldi hófust hér á landi árið 1987 en þá var stofnað fyrirtækið Fiskey, sem lengst af hefur verið eina fyrirtækið sem tileinkað er þessari starfsemi. Tíu árum síðar varð svo Fiskey framleiðslufyrirtæki. Það var bæði með seiðaeldi og einnig með áframeldi þar sem lúðan var alin í slátrunarstærð en þá vegur hún um fimm kíló. Nú er svo komið að lúðustofninn í Norður-Atlantshafi er talinn vera um tvö þúsund tonn en það er svipað magn og framleitt er með eldisaðferðinni. Mesta lúðueldið fer fram í Noregi en Norðmenn vinna mest með seiði frá Íslandi. Hvar eru helstu markaðirnir? Helstu markaðir fyrir lúðu eru á Bretlandi og Bandaríkjunum en lúðuseiði eru aðallega flutt út til Noregs. Nú síðustu ár hefur markaður fyrir þau einnig verið að opnast í Kína. Einnig eru seiði seld til Færeyja og Skotlands.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Tilbúin að takmarka krónutölu og íslensk skólastúlka verður fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira