Nýjar reglur um lóðaúthlutun 14. september 2005 00:01
Bæjarstjórn Kópavogs náði í gær samkomulagi um nýjar reglur um lóðaúthlutun en síðasta úthlutun var harðlega gagnrýnd fyrir ógegnsæi og klíkuskap. Þá bárust 2300 umsóknir um lóðir við Elliðavatn en bæjarráð handvaldi þá tvö hundruð sem fengu lóðirnar. Bæði meirihluti og minnihluti í bæjarstjórn lögðu fram tillögur um breytingar á úthlutunarreglunum. Samkomulag náðist í gær um megin breytingarnar. Á Þingasvæðinu svokallaða, þar sem var úthlutað síðast, eru enn eftir nokkrir tugir lóða. Þeim verður úthlutað samkvæmt nýju reglunum sem eiga að vera gagnsærri, að minnsta kosti minna loðnar; nú er skylt að flokka umsækjendur eftir fjölskylduaðstæðum, núverandi húsnæðisaðstöðu, hvort viðkomandi hafi sótt áður um lóð og því hvort umsækjandinn hafi örugglega fjárhagslegt bolmagn til að ljúka byggingunni á tilskyldum tíma. Ef tveir eða fleiri umsækjendur eru metnir jafnir samkvæmt þessum fjórum þáttum verður dregið en það hefur ekki tíðkast í Kópavogi fram að þessu. Nú verður heldur ekki hægt að framselja byggingarétt fyrr en húsnæði er orðið tilbúið undir innréttingar og á það að hindra eða draga úr braski með lóðir. Samfylkingin vildi einnig setja inn ákvæði um að þeir gengju fyrir sem átt hefðu lögheimili í Kópavogi í eitt ár af síðustu fimm, eins og tíðkast í Reykjavík, Hafnarfirði og fleiri bæjarfélögum, en meirihlutinn féllst ekki á það.
Fréttir Innlent Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira