Samið við Eimskip um Herjólf 13. september 2005 00:01
Samningaviðræður á milli Eimskipa og Vegagerðarinnar vegna reksturs á Herjólfi eru að hefjast. "Það verður gengið út frá tilboðinu og ekki verið að semja umfram það," segir Kristín Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Vegagerðarinnar. Kristín segir að vonandi verði gengið til samninga fjótlega. "Þeir ætla að fá að skoða skipið og eins og venja er munum við kanna fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Ef þetta er allt í lagi verður gengið til samninga." Í útboði Vegagerðarinnar átti Eimskip lægsta tilboðið, bæði hvað snertir grunnáætlun 1, sem gerir ráð fyrir þrettán ferðum á viku og grunnáætlunum 2 sem gerir ráð fyrir fjórtán ferðum. Í áætlun 1 bauð Eimskip 921.775.000, sem er 63,9 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Í áætlun 2 bauð Eimskip 984.480.000, sem er 64,2 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Tilboð voru opnuð 6. september. Höskuldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Eimskip Skipafélags, segir litlar breytingar fyrirhugaðar á rekstri Herjólfs, þar sem reksturinn sé mjög njörvaður niður í útboðinu. "Það verður væntanlega samið til fimm ára, en það er ákvæði í tilboðsgögnum um að ef á kemst samningur um breytingar á öðrum samgögnulausnum til Vestmannaeyja, er hægt að segja samningnum upp á miðju tímabilinu." Ef samningar takast milli Eimskipa og Vegagerðarinnar mun Eimskip taka við rekstri Herjólfs í byrjun næsta árs. Samskip, sem nú rekur Herjólf, átti næst lægsta tilboð í báðar áætlanir. Einnig skilaði Samskip inn fjórum frávikstilboðum, en Kristín segir að ekki verði litið til frávikstilboðanna, þar sem þau fela í sér breytingu á útboðsgögnum. Frávikstilboð séu einungis gild feli þau í sér breytingar á tækni. Fyrir liggur að ferðum Herjólfs muni fjölga verulega, frá því að vera 590 ferðir á ári í 670 eða 720 ferðir.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Tilbúin að takmarka krónutölu og íslensk skólastúlka verður fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira