Innlent

Nýr framkvæmdastjóri hjá RKÍ

Kristján Sturluson, félagsráðgjafi og sálfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands og tekur við því starfi af Sigrúnu Árnadóttur sem gegnt hefur starfinu síðustu 12 ár. Kristján starfaði nú síðast sem framkvæmdastjóri starfsmanna- og umhverfissviðs hjá Norðuráli ehf. en er enginn nýgræðingur á sviði Rauða krossins, hefur verið sjálfboðaliði, deildarformaður, stjórnarmaður og skrifstofustjóri innanlandsskrifstofu. Búist er við að hann taki við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins í lok október.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×