Innlent

Styrkir saltvinnslu og menntun

Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá fimm milljóna króna styrk. Í tilkynningu frá UNICEF hér á landi kemur fram að fénu verð varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun. Verkefnið verður sett af stað á sex svæðum og stendur yfir til loka árs 2006. Joðskortur er mikill í Gíneu-Bissá og segir í skýrslu frá UNICEF að áætlað sé að árlega fæðist 12 þúsund börn greindarskert vegna joðskorts mæðra þeirra við meðgöngu. Þegar joðskortur er eins mikill og í Gíneu-Bissá má áætla að heildargreindarvísitala þjóðarinnar lækki um 10-15 prósentustig og hefur það áhrif á framleiðslugetu þjóðarinnar í heild. Þess má geta að Kiwanis-hreyfingin hefur unnið náið með UNICEF að því að auka framleiðslu joðbætts salts í Gíneu-Bissá á síðastliðnum árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×