Innlent

Bílvelta á Álftanesvegi

Ungur ökumaður slapp með minniháttar meiðsl þegar bíll valt á Álftanesvegi um áttaleytið í gærkvöldi. Bíllinn valt út af veginum skammt frá gatnamótunum við Reykjavíkurveg í Engidal og er talinn ónýtur eftir. Sjónarvottar segja að bíllinn hafi skyndilega tekið að rása á veginum og síðan þeyst út fyrir veg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×