Fjölbreytt dagskrá menningarnætur 17. ágúst 2005 00:01
Yfir 300 viðburðir verða í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt sem haldin verður á laugardaginn í 10. sinn. Lögregla býst við allt að 100.000 gestum í miðborginni. Dagurinn hefst með ávarpi borgarstjóra og Reykjavíkurmaraþoninu verður hleypt af stað klukkan 11. Um það bil 300 viðburðir verða í boði yfir daginn og fram á nótt en Menningarnótt fer nú fram í tíunda sinn og verður danskur keimur af nóttinni þar sem Kaupmannahöfn er gestasveitarfélag borgarinnar þetta árið. Mikill undirbúningur hefur verið undanfarna daga og vikur og er farið að styttast í að fá heildstæða veðurspá fyrir daginn. Meðal listamanna sem finna má á hátíðinni er hljómsveitin Í svörtum fötum, Singapor Sling og Hjálmar, KK og Maggi Eiríks, karlakórinn Fóstbræður og margir fleiri. Dansarar Magdanshúsins koma fram sem og Götuleikhús Hins hússins og Íslenski dansflokkurinn. Eldgleypar og ýmis fleiri skemmtiatriði má finna fyrir unga sem aldna. Ótal margar listasýningar verða opnar langt fram á kvöld, sem og kaffihús, útimarkaðir og veitingahús en þar að auki verður boðið upp á guðsþjónustu fyrir þá sem vilja setjast niður og slaka á. Myndasýning frá Menningarnótt í fyrra verður í Ingólfsnausti í Aðalstræti og má þar rifja upp vel heppnaða Menningarnótt í flesta staði. Alþjóðahúsið blæs svo til karnivals í miðbænum þegar fylkt verður liði í litskrúðugri göngu niður Hverfisgötuna en tilgangur göngunnar er að fanga fjölbreytileika mannlífsins í Reykjavík. Klukkan 11 um kvöldið verður hátíðinni svo slitið með glæsilegri flugeldasýningu Orkuveitu Reykjavíkru. Það verður því úr nægu að velja á þeim tólf tímum sem hátíðin stendur yfir.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira