Umsækjundur guldu fyrir reynslu 13. ágúst 2005 00:01
Landbúnaðarráðuneytið leitaði sérstaklega eftir reynslulitlum einstakling í starf sérfræðings á sviði markaðs- og framleiðslumála í árslok 2002 ef marka má skýringar sem Umboðsmaður Alþingis fékk frá ráðuneytinu. Í bréfi til umboðsmannsins segir að leitað hafi verið að undirmanni "og var almennt talinn kostur að umsækjendur hefðu ekki of mótaða reynslu heldur væru líklegir til að þroskast með starfinu til frambúðar". Umboðsmaður taldi þetta ekki byggt á lögmætum og málefnalegum sjónarmiðum. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra vildi ekki tjá sig um álitið og ráðninguna og vísaði á Guðmund Björgvin Helgason ráðuneytisstjóra. "Ég ætla í sjálfu sér ekki að gagnrýna álitið sérstaklega," segir Guðmundur. "Það er hins vegar að okkar mati vel að þessari ráðningu staðið og ráðinn í það aðili með góða hæfileika til að vinna það starf sem um er að ræða. Þetta er ekki starf sem krefst mikillar starfsreynslu og það var ekki auglýst eftir henni sérstaklega. Starfið sem um ræðir er undirmannsstaða sem hentar vel menntuðu en ekkert endilega reynslumiklu fólki." Einn af umsækjendunum, sem voru 41, óskaði eftir rökstuðningi í ársbyrjun 2003 en erindið virðist aldrei hafa borist ráðuneytinu. Hann hafði ekki verið boðaður í viðtal. Seint á árinu 2004 ítrekaði hann ósk sína og kvartaði um svipað leyti til Umboðsmanns og eftir það tók fimm mánuði að svara erindinu. Þetta taldi Umboðsmaður verulegan drátt sem væri ámælisverður. Guðmundur vísaði í álitið um skýringar á þessu, en þar eru bréfaskrifti milli Umboðsmanns, ráðuneytisins og umsækjandans raktar. Umboðsmaður gerði enga athugasemd við það að umsækjandinn sem kvartaði til hans hafi ekki verið meðal þeirra umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal og hann taldi ólíklegt að þeir annmarkar sem hann sá á ráðningunni leiddu til þess að hún væri ógild.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Sjá meira