Atvinnulausum fer fækkandi 13. ágúst 2005 00:01
Þrjúþúsund eitthundrað þrjátíu og fimm manns voru að jafnaði atvinnulausir í júlímánuði, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Það jafngildir tveggja prósenta atvinnuleysi. Skráðir voru 65.837 atvinnuleysisdagar á landinu öllu. Þeim fækkaði um 3,3% á milli mánaðanna júlí og júní. Munurinn er enn meiri sé júlí borinn saman við sama tíma á síðasta ári, því skráðir atvinnuleysisdagar eru þrjátíu og þremur prósentum minni í ár en þá. Atvinnuleysi hefur því minnkað um eitt prósentustig. Fækkunin er mun meiri á meðal karla en kvenna. Langtímaatvinnulausum hefur einnig fækkað. Þannig voru tuttugu og níu prósent atvinnulausra í júlí langtímaatvinnulausir, þ.e. höfðu verið án atvinnu í meira en hálft ár. Í júní var hlutfallið þrjátíu og tvö prósent. Hjá Greiningardeild KB banka sjá menn merki um að tekið sé að volgna á atvinnumarkaði, sem sést á því að lausum störfum hefur fækkað tvo mánuði í röð. Greiningardeild Landsbankans telur líkur á að launaskrið fari af stað fyrir vikið. Í síðustu uppsveiflu tók ástandið á vinnumarkaði að þrengjast mjög um það bil sem atvinnuleysið fór niður fyrir 2%, en það var í ársbyrjun 1999. Greiningardeild Landsbankans miðar við þá tölu sem einskonar viðmiðunargildi varðandi vanþol vinnumarkaðarins. Nú þegar atvinnuleysið er komið niður að þessum mörkum gera sérfræðingar Landsbankans ráð fyrir að líkur á almennu launaskriði hafi aukist verulega.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira