Innflutningur aldrei hættulaus 12. ágúst 2005 00:01 "
Ég hef verið fylgjandi fyllstu varúð þegar um er að ræða innflutning hingað til lands, hvort sem um er að ræða dýr, afurðir, fósturvísa eða notuð landbúnaðartæki," segir Sigurður Sigurðarson, dýralæknir sauðfjár- og nautgripasjúkdóma á Keldum. Ágreiningur er uppi milli Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis og Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra um hvort leyfa eigi innflutning nautakjöts frá Argentínu. Yfirdýralæknir vill heimila innflutninginn en landbúnaðarráðherra hefur bannað hann þar sem gin- og klaufaveiki hafi greinst í gripum í Argentínu fyrir tveimur árum. Sigurður kveðst ekki vilja tjá sig um ágreininginn sem slíkan enda sé það ekki í sínum verkahring. "Ég veit að það hefur verið unnið nákvæmt hættumat á þessum umbeðna innflutningi og þar kemur fram að hann er ekki hættulaus," segir Sigurður." Hins vegar stafar engin hætta af neyslu íslensks nautakjöts og mér finnst að menn ættu að halda sig við það, í stað þess að taka þessa áhættu." Hann kveðst ekki hafa sett sig nákvæmlega inn í stöðu gin- og klaufaveikimála í Argentínu. "Mér skilst þó að ekki sé bólusett við veikinni á því svæði sem er verið að ræða um innflutning frá. Það þýðir væntanlega að hættan sé þar minni heldur en þar sem bólusett er, því veikin myndi koma fljótlega fram ef hún væri til staðar. Á öðrum svæðum hafa nautgripirnir verið bólusettir af því að gin- og klaufaveikin hefur komið þar upp. Þar getur hún verið mallandi og blossað upp ef bólusetningu væri hætt." Fyrirtækið Kjötframleiðendur ehf. sótti um leyfi til innflutnings nautakjötsins frá Argentínu. Fyrirtækið er í eigu Landssamtaka sauðfjárbænda, Landsambands kúabænda, Félags hrossabænda og starfsmanna. "Ég skil ekki þetta tal um að landbúnaðarráðherra sé að gæta hagsmuna bænda með því að synja fyrirtæki í þeirra eigu um kjötinnflutning," segir Erlendur H. Garðarsson framkvæmdastjóri. "Það er kvótaleyfi á innflutningi á 95 tonnum af nautakjöti. Við framleiðum ekki nógu mikið fyrir landið og því verður að flytja inn kjöt frá útlöndum. Þetta er spurning um hvers vegna verið er að hafna einu landi en ekki öðru."
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira