R-lista viðræður í strand 11. ágúst 2005 00:01
Nefnd, sem rætt hefur samstarf R-listaflokkana á næsta kjörtímabili, ákvað á fundi í gær að slíta frekari viðræðum og fela flokksfélögunum að taka endanlega ákvörðun um framtíð samstarfsins. "Samninganefndirnar hafa ekki komist að niðurstöðu og þess vegna fer málið til flokkanna," sagði Páll Halldórsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni, að loknum síðasta fundi nefndarinnar í gær. Í yfirlýsingu eftir fundinn í gær segja fulltrúar Framsóknarflokksins að þeir hafi verið tilbúnir að teygja sig langt til þess að ná samstöðu. Eftir fundinn lýsti Matthías Imsland, fulltrúi Framsóknarmanna, vonbrigðum með niðurstöðuna í nefndinni. "Við ætlum að kynna kjördæmasambandinu stöðu málsins á fundi á næstunni, þar á meðal tillögu sem Samfylkingin hefur sett fram um sameiginlegt prófkjör." Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, sagði eftir fundinn að viðræðurnar hefðu verið býsna þreytandi á síðustu metrunum og lyktir málsins væru svo sem engin vonbrigði. "Málið verður rætt á félagsfundi. Ég veit ekki hvernig við ættum að komast lengra. Það er spennandi og ögrandi verkefni fyrir Vinstri græna í Reykjavík að bjóða fram til borgarstjórnar. Við göngum hiklaust til verks og full tilhlökkunar ef það verður niðurstaða félagsfundarins. Ef fundurinn vill frekari viðræður tökum við því," segir Svandís. Vænta má þess að tillaga Samfylkingarinnar að lausn málsins verði rædd í flokksfélögunum á næstu dögum. Hún felur í sér að haldið verði prófkjör meðal stuðningsmanna R-listans. Hver flokkur tilnefni fimm til átta fulltrúa og þátttakendum í prófkjörinu verði raðað eftir stafrófsröð á lista. Kjósendur merki við nöfn með tölustöfum frá einum til átta og sá sem flest atkvæði fær í fyrsta sæti verði borgarstjóraefni listans. Tillagan gerir ráð fyrir jafnri dreifingu fulltrúa allra flokka í efstu sæti listans.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira