Var bjargað kátum en köldum 11. ágúst 2005 00:01
Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson kom tveimur mönnum til bjargar klukkan sex í gærmorgun eftir að smábáturinn Eyjólfur Ólafsson hafði strandað við vitann á Straumnesi norðan Aðalvíkur við Ísafjarðardjúp. Smábáturinn var farinn að leka mikið og afréðu mennirnir að senda út neyðarkall um klukkan hálf fjögur og enn fremur ákváðu þeir að sigla bátnum í strand svo hann sykki ekki eða yrði fyrir frekari skemmdum. Afar stórgrýtt er á þessum slóðum og því erfitt að koma báti að landi. Björgunarbáturinn togaði svo smábátinn á flot um klukkan níu í gærmorgun og kom honum ásamt áhöfn til hafnar í Bolungarvík um hádegisbilið. Að því loknu var báturinn hífður í land og er hann nú í viðgerð í Vélsmiðjunni Mjölni þar í bæ. Pálmi Stefánsson, skipstjóri á Gunnari Friðrikssyni, segir það mikla mildi að logn hafi verið því örugglega hefði verið tvísýnt um líf og limi manna hefði verið brim. "Þeir voru kaldir en kátir þegar við komum þeim til hjálpar," segir Pálmi en bætir við að vissulega hafi tvímenningarnir verið skelkaðir því lúkarinn var orðinn fullur af sjó þegar þeim var komið til bjargar. Að sögn Jóns Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Landsbjargar, var fiskibátur staddur skammt frá Eyjólfi Ólafssyni þegar hann strandaði. Ætlaði skipstjóri bátsins að freista þess að koma skipbrotsmönnum til hjálpar en horfið var frá því þar sem hætta væri á að fiskibáturinn strandaði sjálfur eða laskaðist. Í Aðalvík, rétt við slysstað, fæddist og ólst upp Gunnar Friðriksson en hann var forseti Slysavarnarfélags Íslands í 22 ár og er björgunarbáturinn skírður eftir honum. Gunnar lést í byrjun þessa árs. Friðrik, sonur Gunnars, segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem björgunarbáturinn leiti á bernskuslóðir nafna síns til björgunarstarfa. "Þegar báturinn var skírður árið 2000 kom fljótlega útkall frá Látrum í Aðalvík, það eina sem borist hefur þaðan fyrr og síðar. Gamlir menn á Ísafirði höfðu þá orð á því við föður minn að einhverjir í Aðalvíkinni vildu kíkja á gripinn," segir Friðrik.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira