Innlent

Skorar á Bílddæling að gera upp

"Þeir eiga eftir að gera upp við okkur starfsfólkið fjórar vikur, reyndar var slumpað inn á reikningana sem átti að vera tveggja vikna laun en hinar tvær vikurnar eru með öllu óuppgerðar," segir Sólrún Aradóttir fyrrum starfsmaður Bílddælings útgerðarfyrirtækisins á Bíldudal sem lagði niður starfsemi sína í síðasta mánuði. Hún segir að nú þegar hafi tuttugu manns flutt úr bænum frá því sjávarútvegsfyrirtækin Bílddælingur og Mírar lögðu upp laupana. Verkalýðsfélag Vestfjarða, sem fundaði með fyrrum starfsmönnum Bílddælings og Mírar í lok síðasta mánaðar, hefur sent Guðmundi Gunnarssyni stjórnarformanni áskorun um að borga ógoldin laun og gjöld. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stóð stjórnarformaðurinn í þeirri trú að öll laun hefðu verið greidd en bókhaldsskrifstofu fyrirtækisins var lokað meðan vinnsla var enn í gangi og neitaði bókhaldari fyrirtækinu um aðgang að gögnunum. Því var ekki hægt að senda starfsfólkinu launaseðla með síðustu launagreiðslu. Helgi Ólafsson, varaformaður Verkalýðsfélags Vestfjarða, segir að félagið hafi reiknað saman vinnustundir starfsmanna á tímabilinu og þar sem ekki hafi borist nein viðbrögð við áskorun þeirra verði innheimtukrafa líklega send lögfræðingi á næstunni. Hann segir þó kröfuupphæð ekki liggja fyrir þar sem enn sé ekki víst hvað fyrirtækið greiddi mikið í síðustu launagreiðslu. Guðmundur segir að nú sé verið að reikna út laun hvers starfsmanns fyrir sig og að laun þeirra verði gerð upp á allra næstu vikum enda sé það algjört forgangsatrði hjá fyrirtækinu. Hann segir að hluta af vandræðunum með launagreiðslurnar megi rekja til þess að bókhaldsskrifstofu hafi verið lokað fyrirvaralaust. Hann segir ennfremur að hann hafi seilst í eigin vasa til að greiða starfsmönnum eftir að vinnslu lauk. Jafnframt áskoruninni á stjórnarformann skorar Verkalýðsfélagið á þingmenn kjördæmisins að færa byggðarfélaginu aftur þær aflaheimildir sem frá því voru teknar eftir að fiskveiðikvótar fóru að ganga kaupum og sölu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×