Fær hátt í 20 milljónir frá KEA 10. ágúst 2005 00:01
Kaupfélag Eyfirðinga greiðir Andra Teitssyni, fyrrum framkvæmdastjóra KEA, hátt í tuttugu milljónir króna vegna starfsloka hans hjá félaginu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Mánaðarlaun hans voru um 1,2 milljónir króna þegar hann sagði starfi sínu lausu í síðustu viku. Starfslokasamningur sem gerður var við Andra kveður á um að hann verður á launaskrá hjá félaginu, án starfstitils og án vinnuskyldu, þangað til hann fer í níu mánaða fæðingarorlof, sem að líkindum byrjar í janúar næstkomandi, og því getur félagið nú þegar ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, hefur gefið til kynna að brotthvarf Andra frá félaginu eigi ekki rætur að rekja í ósk hans um langt fæðingarorlof heldur hafi komið upp trúnaðarbrestur milli Andra og stjórnar KEA. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það rétt og hefur meirihluti stjórnar KEA verið óánægður með störf framkvæmdastjórans í marga mánuði. Andri vill ekki tjá sig frekar um ástæður þess að hann hafi sagt starfi sínu lausu hjá KEA en vísar í fréttatilkynningu frá því á föstudaginn í síðustu viku þar sem fram kemur að ástæðan sé ósk hans um langt fæðingarorlof. Heimildir Fréttablaðsins herma að stjórnarmenn hafi meðal annars gert athugasemdir við að langan tíma hefur tekið að hrinda ákvörðunum aðalfundar og stjórnar félagsins í framkvæmd. Einnig hafi sumir stjórnarmanna verið óánægðir með persónulegar fjárfestingar framkvæmdastjórans er lúta að jarðakaupum og í fyrra veitti stjórnin honum áminningu í tengslum við fyrirhuguð kaup hans á þriðjungshlut í stærsta mjólkurframleiðslubúi landsins í Eyjafjarðarsveit. Kornið sem fyllti mælinn hjá stjórn KEA var að þegar tilboð voru opnuð í Símann, fimmtudaginn 28. júlí síðastliðinn, var framkvæmdastjórinn í veiðitúr og stjórnarmönnum gekk illa að ná tali af honum. Kaupfélag Eyfirðinga var í hópi fjárfesta sem áttu næsthæsta tilboðið í Símann og hugsanlegt að félagið hefði átt kost á að gera annað tilboð sama dag og þau voru opnuð.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira