Vill hækka fjármagnstekjuskatt 10. ágúst 2005 00:01 "
Mér finnst vel koma til greina að hækka skatta á fjármagnstekjur um nokkur prósentustig en það þarf að fara gætilega með hversu mikið skatturinn verður hækkaður því hækkanir mega ekki ýta undir að fjármagn fari úr landi, " segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Fyrirhugaðar breytingar á skattkerfinu hafa nú verið ræddar meðal stjórnarflokkanna og má búast við því að tillögur þess efnis verði ræddar í þingflokkunum þegar þeir koma saman á næstu vikum til að ræða fjárlagagerð. Nokkuð skiptar skoðanir eru innan þingflokka stjórnarflokkanna um hvaða áherslur eigi að draga hvað skattalækkanir varðar en viðmælendur Fréttablaðsins innan þingflokkanna telja að mest sátt náist um lækkun virðisaukaskatts á matvæli. Hjálmar segir að búast megi við töluverðum tíðindum hvað skattamál varðar á næstunni: "Ég tel að það sé í raun allt saman undir, hvort sem er lækkun á tekjuskatti eða lækkun á þeim hluta virðisaukaskatts sem leggst á matvæli. Það þarf að meta þessa hluti í tengslum við aðra þætti og ekki síst velferðarkerfið. Við heyrum stöðugar kröfur um aukin útgjöld til hins og þessa, til dæmis skólamála, heilsugæslunnar og svo framvegis. Það þarf að finna jafnvægi á milli þessara hluta," segir Hjálmar. Hann segist vera sammála Einari K. Guðfinnssyni, þingflokksformanni sjálfstæðismanna, um afnám vaxtabótakerfisins. "Ég tek undir hans orð að það megi taka það til endurskoðunar. Stíga þarf varlega til jarðar. Margir hafa fjárfest í íbúðum og í sínum áætlunum hefur fólk gert ráð fyrir vaxtabótum og við megum aldrei koma í bakið á því fólki," segir Hjálmar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira