Erlent

Gengið gegn fátækt í 90 löndum

Gengið er í dag í 90 löndum í heiminum til þess að safna fé til skólamáltíða í fátækustu ríkjum heims. Það er Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna sem stendur fyrir átakinu en það ber yfirskriftina Gangan um heiminn. Sjálfboðaliðar munu ganga um 5 kílómetra í löndunum 90 en um er að ræða árvissan viðburð. Á hverju ári deyja um 6,5 milljónir barna af völdum sjúkdóma sem þau geta ekki varist vegna vannæringar og þá er hungur og fátækt meginástæðurnar fyrir því að hundrað milljón börn sækja ekki skóla. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að það kosti aðeins um 34 dollara, tæpar 2.200 krónur, á ári að sjá hverju barni í fátækustu ríkjum heims fyrir skólamáltíð og vonast stofnunin til þess að safna um 130 milljónum til verkefnisins á þessu ári. Hægt er að leggja málefninu lið á heimasíðunni fighthunger.org.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×