Erlent

Ástralir bestu rúningsmennirnir

Ástralar eru bestu rúningsmenn í heimi. Þetta varð ljóst eftir alþjóðlega rúningskeppni sem fram fór í Ástralíu í dag. Heimakonan Shannon Warness hafði þar betur en keppendur frá sextán öðrum löndum og hlaut í annað sinn hin eftirsóttu verðlaun gullni rúningsmaðurinn. Alls tóku 230 keppendur þátt í mótinu en þar skiptir hraðinn ekki einungis máli heldur einnig hversu vel verkið er unnið. Bestu rúningsmenn heims eru sagðir rýja rúmlega 200 ær á dag en það fylgir reyndar sögunni að margir keppendanna á mótinu í Ástralíu hafi átt í erfiðleikum með fíngerða ullina á hinu ástralska merino-verðlaunafjárkyni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×