Erlent

Sýkna í pyntingarmáli í Líbíu

Níu líbískir lögreglumenn og einn læknir voru í gær sýknaðir af ákæru um að hafa náð fram með pyntingum játningu fimm búlgarskra hjúkrunarkvenna. Þær voru sakaðar um að hafa viljandi smitað 430 börn með alnæmisvírusnum og voru ásamt palestínskum lækni dæmd til dauða. Þau hafa setið í fangelsi í sex ár. Fólkið heldur fram sakleysi sínu og segist hafa orðið fyrir barsmíðum, raflostum og öðru ofbeldi af hálfu lögreglu. Tvær kvennanna segja að sér hafi verið nauðgað. Í dómnum sem féll í gær segir að sönnunargögn hafi verið of rýr til að hægt sé að sakfella lögreglumennina. Dauðadómnum var áfrýjað til hæstaréttar og dóms að vænta í haust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×