Mesta síld í þrjátíu ár 27. maí 2005 00:01
Það eru miklar gleðifréttir að norsk-íslenska síldin finnist aftur innan íslenskrar lögsögu að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Sjómenn segja hennar ekki hafa orðið vart í jafn miklu magni í þrjátíu ár. "Ef síldin fer að halda sig innan lögsögunnar skiptir það sköpum," segir Friðrik J. "Það er grundvallaratriði er kemur að samningsstöðu okkar og gerir síldina líka verðmætari. Þá getum við unnið hana í landi í stað þess að bræða hana úti á sjó eins og við höfum verið að gera." Norðmenn sögðu fyrir tveimur árum einhliða upp samningi um skiptingu síldarinnar og fóru fram á aukinn hlut. Aðild að samningnum áttu strandríkin svokölluðu, Ísland, Færeyjar, Rússland og Noregur auk Evrópusambandsins. Hlutur Norðmanna samkvæmt samningnum frá 1996 er 57 prósent en eftir að ekki náðust samningar juku þeir veiði sína í 63 prósent aflans. Hlutur Íslendinga var 15,54 prósent. "Við hefðum sætt okkur við samninginn frá 1996. En fyrst Norðmenn tóku þetta í sínar hendur urðum við náttúrulega að gera það líka. Því jukum við veiðina til samræmis við Norðmenn." Friðrik segir stöðuna í viðræðum slæma og býst ekki við að samkomulag náist á þessu ári. Aðspurður hvort nýtt síldarævintýri sé í uppsiglingu segir Friðrik: "Það er of snemmt að segja til um það. Hins vegar er að koma fram mjög sterkur árgangur sem við bindum miklar vonir við. Við erum í það minnsta full bjartsýni." Gullbergið kom í gærdag inn til Neskaupstaðar með um 200 tonn af mjög vænni síld sem fékkst í nót austur af Dalatanga en til þessa hefur síldin nær eingöngu veiðst í troll. Hákon Viðarsson hjá Síldarvinnslunni hf. segir síldina einstaklega góða og átulausa og Gullbergið einstaklega vel búið til að halda henni kældri, enda um afbragðs hráefni að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira