Deyja 100 árlega vegna mistaka? 26. maí 2005 00:01
Gera má ráð fyrir að mistök í meðferð sjúklinga hér á landi leiði árlega til um það bil til 130 dauðsfalla og kosti þjóðarbúið um 1,3 milljarða króna. Þá má ætla að um eitt þúsund manns verði fyrir heilsutjóni árlega vegna rangrar meðferðar í heilbrigðiskerfinu. Þessar tölur byggja á sambærilegum tölum frá Noregi þar sem rannsókn við Háskólann í Björgvin sýnir að mistök í heilbrigðiskerfinu kosta um tvö þúsund manns lífið árlega og um fimmtán þúsund manns bíða árlega mikinn skaða vegna rangrar meðhöndlunar lækna. Áætlað er að þetta kosti norska skattgreiðendur nálægt tuttugu milljarða árlega í íslenskum krónum talið. Mistök af því tagi sem hér um ræðir geta verið margs konar, allt frá rangri lyfjagjöf upp í mistök við aðgerðir. Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir engar rannsóknir hafa farið fram á þessu sviði hér á landi enda um umfangsmikla rannsóknarvinnu að ræða. "En það er hins vegar vafalaust hægt að heimfæra þessar tölur frá Noregi upp á Ísland. Heilbrigðiskerfið þar er ekkert frábrugðið okkar og þetta því sambærilegt að mörgu leyti", segir hann. Undir þetta tekur Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknafélags Íslands sem segir að samanburður við bandarískar kannanir sýni svipaða niðurstöðu. "Þær tölur sem eru réttar fyrir þessi lönd eru mjög líklega sambærilegar fyrir Ísland", segir hann. Sigurbjörn segir að Læknafélag Íslands hafi beitt sér fyrir umræðu um öryggi í íslensku heilbrigðiskerfi og telji mikilvægt að ráðast í rannsókn á afleiðingum læknamistaka hér á landi. Slík rannsókn þurfi ekki að vera mjög dýr þar sem öll gögn eru til. "Ég held að við hljótum að þurfa að ráðast í svona rannsókn hér fyrr en síðar, við verðum eiginlega að gera það, því þetta er einn af grundvallarþáttum gæðastjórnunar í heilbrigðiskerfinu", segir Sigurbjörn Sveinsson.
Fréttir Innlent Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira