Innlent

Mótmælir tilefnislausum uppsögnum

Trúnaðarráð verkalýðsfélaga starfsmanna í álveri Alcan í Straumsvík sendi nú áðan frá sér ályktun þar sem það mótmælir harðlega tilefnislausum uppsögnum fimm starfsmanna. Sérstaklega er gagnrýnt að starfsmönnunum var vísað fyrirvaralaust af vinnustað. Þar segir að engar ástæður hafi verið gefnar fyrir uppsögnunum þótt eftir þeim hafi verið leitað. Segir trúnaðarráðið að þessi framkoma stjórnenda fyrirtækisins hafi valdið miklum ugg hjá öðrum starfsmönnum varðandi atvinnuöryggi og er skorað á stjórnendur að skýra aðgerðir sínar hið fyrsta fyrir starfsmönnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×