Nefnd áminnir fjárfesta í Símanum 19. maí 2005 00:01
Fjárfestar sem skilað hafa inn tilboðum í Símann sem ekki eru bindandi voru í gær áminntir um að virða trúnaðarsamning sem þeir undirrituðu til að fá útboðsgögn afhend. Í bréfi frá einkavæðingarnefnd til fjárfestanna kemur fram að tilteknar upplýsingar um söluferlið hafi verið gerðar opinberar í fjölmiðlum undanfarna daga án heimildar. Þá segir að upplýsingagjöfin geti falið í sér brot á trúnaðarsamningi og nefndin kunni að telja hana verulega vanefnd. Vísað er í ákvæði um að ekki megi láta neinum aðila í té upplýsingar varðandi hugsanlega sölu Símans án skriflegs samþykkis einkavæðingarnefndar. "Ástæða er til að árétta það að hvers konar brot á trúnaðarsamningum mun verða litið mjög alvarlegum augum og getur leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu án frekari fyrirvara," segir í bréfinu. Er þetta í samræmi við frétt Fréttablaðsins í gær um að lögmenn einkavæðingarnefndar telji að fréttatilkynning hóps fjárfesta, sem samanstendur af Bruðarási, KEA, Ólafi Jóhanni Ólafssyni, Talsímafélaginu og Tryggingamiðstöðinni með aðild Almennings, hafi ekki verið í samræmi við áðurnefnd trúnaðarákvæði. Það var staðfest af forystumanni í hópnum. Agnes Bragadóttir, forsvarsmaður Almennings, sagði í hádegisfréttum Útvarps í gær að félagið hefði engar athugasemdir fengið. Allt sem Almenningur hefði gert stæðist fullkomlega alla skilmála Morgan Stanley og einkavæðingarnefndar. Á fréttavef Viðskiptablaðsins er haft eftir Jóni Sveinssyni, formanni einkavæðingarnefndar, að yfirlýsing Almennings og fjárfestahópsins í fjölmiðlum feli í sér brot á trúnaðarsamningi við nefndina. Í viðtali við Viðskiptablaðið í dag segir hann það mjög alvarlegt mál þegar menn virði ekki slíkan samning, sem sé í rauninni grundvöllurinn að öllu ferlinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira