Reknir og vikið af vinnustaðnum 18. maí 2005 00:01 "
Þeir eru að vinna eftir einhverri mannauðsstefnu þar sem allir eiga að falla svo vel inn í liðið að þeir sem ekki falla alveg inn í þetta eru bara látnir fara," segir Gylfi Ingvason, trúnaðarmaður starfsmanna ALCAN í álverinu við Straumsvík. Mikil óánægja er meðal starfsmanna með að fimm starfsmönnum hefur verið sagt upp frá 1. mars og þykir mönnum sérlega harkalega að uppsögnunum staðið. Markús Kristjánsson er einn þeirra sem var rekinn. "Ég hafði fengið leyfi til að fara í hádeginu þar sem ég varð að fara í jarðarför. Klukkan hálftólf var ég svo boðaður á fund og fékk reyndar ekki að hafa trúnaðarmann með mér eins og ég vildi. Þar var mér sagt upp án nokkurra skýringa. Svo var mér fylgt af svæðinu líkt og fanga. Þannig lauk 30 ára starfsferli mínum á þessum stað." Einn þeirra fimm sem sagt var upp var í sjúkrameðferð á Stykkishólmi þegar hringt var í hann og honum tilkynnt að hans biði uppsagnarbréf þegar hann kæmi heim. Að sögn Gylfa vildu forráðamenn ALCAN tryggja í viðurvist vitna að símtalinu að uppsögnin hefði verið kynnt starfsmanni fyrir mánaðamót. Hann var í meðferð vegna meiðsla sem hann hlaut í starfi en ALCAN viðurkennir ekki að meiðslin séu af þeim toga og er mál hans nú hjá lögfræðingi að sögn Gylfa. Í öðru tilfelli var hringt í starfsmann heim og honum tilkynnt að honum bærist uppsagnarbréf eftir mánaðamótin. Gylfi segir að starfsmenn séu afar ósáttir við að mönnum sé fylgt líkt og föngum út fyrir svæðið eftir að búið er að segja þeim upp. Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi ALCAN segir að hann geti ekki tjáð sig um einstök mál né einstaklinga. Hinsvegar segir hann að mönnum hafi verið tilkynnt um uppsagnir símleiðis þar sem ekki væri öruggt að tilkynningin bærist með öðrum hætti. Trúnaðarráðsfundur fór fram í gær þar sem þessi mál voru rædd og mun stjórn ALCAN berast ályktun frá þessum fundi í dag. Ekki náðist í forstjóra, starfmanna- né ráðningastjóra ALCAN í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Erlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Aftur logar eldur í Læradal Erlent Fleiri fréttir 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Sjá meira