Ólafur Ragnar í Kína 18. maí 2005 00:01 "
Það var auðvitað ekki tilviljun að ég skildi velja Háskólann í Peking til þess að flytja þennan boðskap og til þess að vísa til reynslu okkar á vettvangi lýðræðis og vísa í lýðræðisþróun í Evrópu, þróun mannréttinda og þær hugmyndir sem þessu eru tengdar. Þessi háskóli hefur verið í fararbroddi á sögulegum tímamótum þegar lýðræðisbylgjan var að reyna að brjótast fram í Kína," sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti þegar hann var spurður að því hvers vegna hann ákvað að ræða mannréttindamál í ræðu sem hann hélt við við háskólann. "Það kveður við allt annan tón á fundum mínum núna miðað við aðra fundi sem ég hef áður átt við ráðamenn í Kína þegar mannréttindamál ber á góma, það er ekki þessi sama spenna," sagði Ólafur Ragnar. Ólafur Ragnar hélt einnig ræðu á ráðstefnu íslensku viðskiptasendinefndarinnar þar sem hann lagði áherslu á að hlutverk Íslendinga væri að vera hlekkur og hvati í viðskiptum Kínverja við Evrópu og Bandaríkin. FL-Group undirritaði samning við Air China um leigu á fimm Boeing þotum en samningurinn er gerður í framhaldi af kaupum FL-Group á 15 nýjum flugvélum af gerðinni Boeing 737-800 fyrr á þessu ári, sem var stærsti flugvélakaupasamningur í sögu félagsins. Vélarnar verða afhentar í júlí á næsta ári. Fulltrúar kínversku borgarinnar Xianyang, Íslandsbanki og Enex sem er samstarfsfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur um útflutning á hitaveituþekkingu undirrituðu samkomulag um uppbyggingu hitaveitumála í þessari kínversku stórborg. "Það er greinilegt að kínversk stjórnvöld hafa gríðarlegan áhuga á því að nýta jarðvarmann sem er víða í Kína," sagði Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður Orkuveitunnar eftir undirritun samkomulagsins í samtali við Hallgrím. Alfreð bætti svo við: "Það er greinilegt að Kínverjar hafa mikinn áhuga á jarðvarma og vilja hafa samstarf við okkur Íslendinga sem erum kannski mestu sérfræðingar í heimi á þessu sviði"
Fréttir Innlent Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira