Innlent

ÍE prófar nýtt asmalyf

Íslensk erfðagreining greindi frá því í dag að hafnar séu lyfjaprófanir af öðrum fasa á nýju tilraunalyfi fyrirtækisins við asma og að fyrsti sjúklingurinn hafi þegar hafið lyfjatöku. Lyfið hefur áhrif á starfsemi ensíms sem erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt fram á að tengist líffræðilegum orsökum asma. Lyfið var upphaflega þróað við öðrum sjúkdómi af öðru lyfjafyrirtæki. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að um 160 íslenskir asmasjúklingar með áhættuarfgerð taki þátt í lyfjaprófununum. Markmið þeirra sé að kanna hvort lyfið sé öruggt og hvort sjúklingar þoli það vel ásamt því að kanna áhrif mismunandi skammtastærða á lungnastarfsemi og bólgur í öndunarvegi. Reiknað er með að niðurstöður lyfjaprófananna muni liggja fyrir í haust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×