Innlent

Freysteinn fær hvatningarverðlaun

Dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Norræna eldfjallasetrinu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fékk í morgun hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Freysteinn er vel þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir rannsóknir sínar á jarðskorpuhreyfingum og eldfjallavöktun. Hvatningarverðlaunin eru árlega veitt ungum vísindamanni sem þykir skara fram úr og gefa væntingar um mikilsvert framlag til vísinda og rannsókna á Íslandi. Verðlaunin nema tveim milljónum króna og eru þetta stærstu vísindaverðlaun sem veitt eru hér á landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×