Innlent

Hundaræktendur takast á

"Fráfarandi formaður tilkynnti mér á fulltrúafundi að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér aftur, en taldi ekki þörf á því að tilkynna það neinum nema stjórninni," segir Guðmundur Helgi Guðmundsson, annar frambjóðandi til formanns Hundaræktarfélags Íslands um vinnubrögð Þórhildar Bjartmarz, fráfarandi formanns félagsins. Guðmundi finnst það ólýðræðisleg vinnubrögð af hálfu Þórhildar að tilkynna almennum félagsmönnum ekki ákvörðun sína. Mótframbjóðandi Guðmundar er Jóna Th. Viðarsdóttir, gjaldkeri félagsins. "Mér finnst þetta hafa þann brag á sér að Þórhildur hafi reynt að velja sér eftirmann með því að láta ekki almenna félagsmenn vita af ákvörðun sinni." Guðmundur Helgi hefur áður gegnt formennsku í félaginu og ákvað að bjóða sig aftur fram núna eftir að óánægðir félagsmenn gáfu sig á tal við hann. "Það hafa verið uppi óánægjuraddir með núverandi stjórn og því miður er þetta ekki eina dæmið um ólýðræðisleg vinnubrögð hennar. Ég vil sjá meira lýðræði í starfi félagsins þannig að rödd félagsmanna fái að óma. Margt í starfi félagsins er vissulega til fyrirrmyndar en það er því miður of margt sem hefur farið forgörðum." Þórhildur Bjartmarz, fráfarandi formaður kannast ekki við að hafa reynt að velja sér eftirmann. "Tímamörkin til að tilkynna framboð sitt runnu út 30. mars. Ég gaf ekki kost á mér fyrir þann tíma og það hefur legið fyrir síðan. Þetta eru reglur félagsins og það hlýtur sama yfir mig að ganga og aðra," segir Þórhildur og bætir við að sér finnist Guðmundur ekki hafa haldbær rök fyrir gagnrýni sinni. Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands fer fram í reiðhöll Gusts í kvöld og hefst klukkan 20. Þeir sem vilja kynna sér efni fundarins geta litið á heimasíðu félagsins hrfi.is. Ekki náðist í Jónu Th. Viðarsdóttur, mótframbjóðanda Guðmundar Helga vegna málsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×