Innlent

Sinubruni í Breiðholti

Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út rétt eftir klukkan eitt í dag vegna sinubruna við Erluhóla í Reykjavík. Vel gekk að slökkva eldinn sem var ekki mikill að þessu sinni. Þessi árstími er vinsæll hjá ungum brennuvörgum og biður lögregla foreldra að leggja áherslu á það við börn sín hversu hættuleg þessi tómstundaiðja getur verið og að þau ættu að forðast hana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×