Innlent

Skjálftahrinan heldur áfram

Skjálftahrinan suður af Reykjanesi heldur áfram en frá því á miðnætti hafa fjórtán skjálftar orðið þar, sá öflugasti 3,9 á Richter. Sá síðasti varð um stundarfjórðungi yfir átta í morgun. Flestir urðu þeir í námunda við Eldeyjarboða. Skjálftahrinan hefur verið nokkuð öflug en hún hófst í fyrradag og skipta skjálftarnir hundruðum. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands eru engin merki um gosvirkni í tengslum við skjálftana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×