TIlfinningar tengdar golfinu 10. maí 2005 00:01
Edwin hefur starfað við hönnun golfvalla frá því í upphafi árs 2002 en fyrst tók hann fjögur og hálft ár í að nema fræðin úti í Bretlandi. "Strax eftir Verslunarskólann ákvað ég að fara út og var með hönnunina efst í huga en fór fyrst í almennt nám í öllu sem lýtur að golfi," segir hann. Spurður um nýleg viðfangsefni nefnir hann gagngerar breytingar á Jaðarsvelli á Akureyri, stækkun Hlíðavallar hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ og breytingar og stækkun á Silfurnessvelli á Hornafirði. "Að öllum líkindum verður svo völlur eftir mig opnaður í ágúst austur við Geysi," bætir hann við. Hann kveðst teikna vellina að miklu leyti í tölvu. "Reyndar byrja ég nú oft að rissa þá upp á pappír, það er einhvern veginn auðveldara. Svo er þetta sett inn í tölvu eins og hvert annað mannvirki. Allt í hnitatengdum skrám og teikningum eins og lög gera ráð fyrir." Fyrst af öllu kveðst Edwin byrja á að skoða landið, kynna sér landamerkjamál, annmarka og kvaðir ef slíkt sé fyrir hendi. "Það tekur oft tíma að fara gegnum skipulagsferilinn og í ýmsum löndum getur það tekið fleiri ár. Við höfum sem betur fer ekki lent í miklum hremmingum hér og yfirleitt getað valið landsvæði sem hentar vel til golfvallargerðar. Það hefur mikið að segja upp á kostnaðinn að ekki þurfi að fara út í mjög miklar breytingar. Jarðvegsskipti eru þó stundum nauðsynleg. Ég hef verið að vinna í landi þar sem nánast ekkert hefur þurft að gera og allt upp í það að þurfa að flytja hundruð þúsunda rúmmetra efnis," útskýrir hann. Edwin er fróður um golfvellina á Íslandi enda gaf hann út bókina Golfhringur um Ísland fyrir jólin 2002 með eigin myndum af öllum völlum landsins. "Einkenni íslenskra golfvalla er að þeir styðjast við landslagið eins og það er frá náttúrunnar hendi," segir hann. "Allir hafa sín mikilvægu sérkenni og það er ein af ástæðum þess að útlendingar eru mjög hrifnir af að spila golf hér." Eitt af verkefnum Edwins er að skrifa golfgreinar á rússneska vefsíðu og svara fyrirspurnum í framhaldinu. Drengurinn er í útrás því nú er hann á förum til Moskvu að halda erindi á stórri golfsýningu. Allsstaðar er golfíþróttin á uppleið og því er hann í lokin spurður hvort hann sé ekki alltaf með áhugasamt fólk í kring um sig. "Jú," svarar hann brosandi. "Oft eru líka miklar tilfinningar í spilinu og stundum þarf að draga menn niður á jörðina svo þeir fari ekki fram úr sér í peningamálunum. Menn gera sér ekki alltaf grein fyrir því hvað það felur í sér að byggja golfvöll og gera það vel."
Atvinna Mest lesið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Sonurinn skírður Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Bítið í beinni Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira