Heimamenn í innflytjendabúðir 3. maí 2005 00:01
Í Ástralíu eru í gildi ein ströngustu innflytjendalög í heimi. Þau eru svo ströng að yfirvöld eru farin að senda eigin ríkisborgara í innflytjendabúðir í tugatali. Að minnsta kosti þrjátíu og þrír Ástralir hafa fyrir mistök lent í innflytjendabúðum undanfarin tvö ár og í það minnsta einum verið vísað til fæðingarlands síns, þrátt fyrir ástralskan ríkisborgararétt. Mörgum var þó nóg boðið þegar í ljós kom að áströlsk kona sem veik er á geði var lokuð inni í tíu mánuði því einhver hélt að hún væri ólöglegur innflytjandi. Um 43% þeirra nítján milljóna manna sem búa í Ástralíu eru fædd í öðru landi en mikill innflytjendastraumur lá þangað fyrstu áratugina eftir heimsstyrjöldina síðari. Þessi harða innflytjendastefna hefur samt fallið í kramið hjá þessum fyrrum innflytjendum fernar kosningar í röð. Sex innflytjendabúðir eru í Ástralíu sjálfri og þar hafast flóttamenn oft við árum saman því áströlsk yfirvöld taka sér góðan tíma í að vega og meta hælisumsóknir. Síðustu ár hefur landhelgisgæslan reynt að stöðva alla báta sem reyna að komast til landsins og siglt þeim til smáríkjanna Nárú og Papúa Nýju-Gíneu þar sem yfirvöld frá greitt fyrir að geyma flóttamenn í búðum. Það virðist ekki mikil sæluvist því reglulega berast fréttir úr þessum búðum af mótmælum, hungurverkföllum og sjálfsmorðum. Alþjóðleg mannréttindasamtök hafa gagnrýnt stefnu Ástrala í málefnum innflytjenda lengi, en ekkert hefur fengið þeim haggað. Það er ef til vill spurning hvort breyting verði á nú þegar borgararnir sjálfir eru farnir að verða fyrir barðinu á henni.
Erlent Fréttir Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Fleiri fréttir Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Sjá meira