Egg verður að vera boðið 29. apríl 2005 00:01
Það er ekki hægt að biðja einhvern um egg til frjóvgunar, það verður að vera boðið, segir Anna Þorvaldsdóttir, sem þarf á eggi frá annarri konu að halda til að geta eignast barn. Fjöldi eggjagjafa hefur aukist lítillega síðan tæknifrjóvgunarstofan Art Medica hóf að bjóða gjöfunum greiðslu, en biðlistarnir eru enn langir. Hálft ár er síðan einkarekna tæknifrjóvgunarstofan Art Medica tók til starfa. Hún bauð í fyrsta sinn þeim konum sem voru tilbúnar að gefa egg þóknun fyrir fyrirhöfnina sem fylgir gjöfinni. Upphæðin er þó ekki há, 50 til 100 þúsund krónur, enda er ólöglegt samkvæmt alþjóðasáttmálum að auglýsa eftir eggjum til frjóvgunar fyrir greiðslu. En peningarnir skipta víst litlu máli. Þórður Óskarsson kvensjúkdómalæknir segist telja að umfjöllunin skipti meiru en greiðslan sé ekki há en hún standi undir þeim kostnaði sem annars fylgdi þessu fyrir konuna sem gefur eggið. Aðspurður hvort biðlistarnir hjá Art Medica hafi styst segir Þórður að þeir hafi aðeins styst en það mætti vera betra og skortur sé á gjöfum. Þórður hvetur því hraustar mæður undir 35 ára aldri til að láta gott af sér leiða og gefa egg. Anna Sigríður Þorvaldsdóttir hefur vitað í mörg ár að hún gæti ekki eignast börn á venjulegan hátt en skammt er síðan hún komst að því að hún þyrfti gjafaegg. Anna segist hafa komist að því fyrir um þremur mánuðum að glasafrjóvgunarmeðferðir bæri ekki tilætlaðan árangur þannig að egg úr henni þroskaðist. Þá sé ekki hægt að gera annað en að fá gjafaegg. Í meirihluta tilvika eru það vinkonur eða systur eggjaþegans sem gefa eggið. Á Anna einhvern að leita til um egg? Hún segist hafa sett það sem algjöra grundvallareglu að leita ekki til neinnar konu vegna þess að hún telji að ekki sé hægt að biðja um egg. Þetta sé einfaldlega of stórt mál. Hins vegar sé það yfirleitt þannig að eggjagjafar bjóði eggin, en sumir séu ekki í þeirri aðstöðu að eiga vinkonu eða systur á þeim aldri sem æskilegt sé. Anna og maður hennar eru nú að velta fyrir sér mögulegum úrræðum. Það getur tekið langan tíma að fá gjafaegg. En þau eru bjartsýn á að úr rætist. Anna segir það dásamlega gjöf ef einhver sjái sér það fært að gefa egg fyrir konur eins og hana eða þær konur sem séu á biðlistunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira