Erlent

Margmenni við útför páfa

Líkið af Jóhannesi Páli páfa var síðdegis flutt í Basilíku Péturskirkjunnar í Róm þar sem almenningi gefst kostur á að votta honum virðingu sína næstu daga. Útför páfa fer fram á föstudaginn og er búist við margmenni.

Lík páfa hefur legið á viðhafnarbörum frá því í gær og það var síðdegis í dag borið inn í kirkjuna. Kardinálar kaþólsku kirkjunnar vottuðu páfa virðingu sína og síðan mun almenningur fá að streyma inn í kirkjuna til að kveðja hann. Tugir þúsunda manna hafa hafst við á Péturstorginu í Róm um helgina og búist er við því að um tvær milljónir manna muni á næstu dögum flykkjast til Rómar til að sjá páfa í hinsta sinn.

Biðröðin við Péturskirkjuna er þegar orðin gríðarlöng, lögregla áætlar að um hundrað þúsund manns bíði þess að komast inn í kirkjuna sem verður opin nánast allan sólarhringinn. Aðeins verður lokað í þrjár klukkustundir um blánóttina svo hægt sé að þrífa húsið og laga líkið.

Páll Jensson, prófessor í iðnaðarverkfræði sem staddur er í rannsóknarleyfi í Róm, segir að allt mannlífið í borginni snúist um andlát páfa þessa dagana og talað sé um að öll hótel séu að fyllast. Páll og eiginkona hans fóru að Péturstorginu á laugardag og segir hann það hafa verið mjög áhrifamikið að vera þarna með þessum gífurlega mannfjölda. Ófáir hafi líka fellt tár.

Útför páfa fer fram á föstudagsmorgun og verður hann jarðsettur í grafhvelfingu undir Péturskirkjunni. Búist er við um 200 þjóðarleiðtogum, meðal annars Bush Bandaríkjaforseta, Blair, forsætisráðherra Bretlands, Schröder, kanslara Þýskalands, Juan Carlos Spánarkonungi og Freiberga, forseta Lettlands. Ekki liggur enn fyrir hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fari til Rómar fyrir Íslands hönd en þegar síðasti páfi var jarðsettur var aðeins íslenskur sendiherra viðstaddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×