Sport

Bergkamp fær þriggja leikja bann

Dennis Bergkamp, leikmaður Arsenal, þarf að afplána þriggja leikja bann vegna brottvísunar í leik gegn Sheffield United á laugardag. Arsenal óskaði eftir því að rauða spjaldinu yrði breytt í gult spjald og að Bergkamp myndi því sleppa við bannið. Enska knattspyrnusambandið hafnaði beiðninni. Bergkamp missir af seinni leiknum við Sheffield United og tveimur leikjum í úrvalsdeildinni, gegn Southampton og Portsmouth. Enn liggur ekki fyrir hvort Jose Antonio Reyes fær leikbann en hann hefur frest til klukkan 18 annað kvöld til þess að koma fram með málsbætur, annars gæti hann fengið þriggja leikja bann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×