Arnar í hjartaaðgerð 19. febrúar 2005 00:01
Arnar Jón Sigurgeirsson, leikmaður meistaraflokks KR í knattspyrnu, mun gangast undir hjartaaðgerð í vor eftir skoðun sem hann fór í á síðasta ári. "Það kom í ljós galli í fyrrasumar sem hefur líklega verið til staðar frá fæðingu. Hann lýsir sér þannig að það er opin fósturæð í hjartanu," sagði Arnar í samtali við Fréttablaðið. "Þetta er eitthvað sem á að lokast fljótlega eftir fæðingu en það hefur greinilega ekki gerst og er að koma í ljós fyrst núna. Læknarnir vilja laga þetta og það á ekki að vera neitt hættulegt." Samkvæmt Arnari er fylgst vel með ungbörnum í dag hvað þetta snertir. "Ef þetta lokast ekki fara menn mjög ungir í aðgerð en einhverra hluta vegna hefur þetta farið mjög leynt í mér þangað til í fyrra." Arnar sagðist ekki hafa fundið fyrir því að neitt væri í ólagi. "Það er bara gott mál að þetta skuli hafa komið í ljós. Ég fann í rauninni ekki fyrir neinu og þetta uppgötvaðist fyrir tilviljun þegar ég fór í skoðun hjá lækni út af öðru máli. Hann heyrði eitthvað undarlegt er hann hlustaði mig og sendi mig til hjartalæknis. Ég hef í sjálfu sér ekkert fundið fyrir þessu." Arnar vonast til að komast í aðgerð í vor og ef allt gengur að óskum mun hann verða stálsleginn á nýjan leik fljótlega eftir aðgerðina. "Það er víst hægt að laga þetta í gegnum hjartaþræðingu og að henni lokinni á ég að geta gert allt sem mig langar til nokkrum vikum seinna. Það fer eftir því hversu langt það dregst hvort ég komist í form fyrir mótið. Það verður að sjálfsögðu að fylgjast með þessu en ég hef ekki teljandi áhyggjur. Ég verð bara jafngóður og jafnvel betri eftir á," sagði Arnar Jón, áhyggjulítill um gang mála. Úr herbúðum KR er það annars að frétta af samningur liðsins við Kristin Hafliðason rann út í vor og að sögn Magnúsar Gylfasonar, þjálfara KR-inga, verður samningurinn ekki endurnýjaður.
Íslenski boltinn Mest lesið Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Þetta var bara út um allt“ Fótbolti „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Fótbolti Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans Fótbolti FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Fótbolti Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sport „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Fleiri fréttir Lehmann færir sig um set á Ítalíu Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG „Þetta var bara út um allt“ Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin KR fær þýskan varnarmann Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Fegin að hvítir leikmenn Englands klikkuðu líka á vítum Ronaldo trúlofaður Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Sjáðu frábærar afgreiðslur Sigurðar Bjarts, vítavörslur Árna og endurkomu KR-inga Gunnlaugur byrjar vel á móti þar sem til mikils er að vinna „Dóri verður að hætta þessu væli“ Ingibjörg seld til Freiburg Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Enska augnablikið: Sá allra svalasti Sjá meira