Stjórnin hélt velli 8. febrúar 2005 00:01
Ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen hélt velli í þingkosningunum í Danmörku í gær. Fylgi Venstre, flokks Rasmussens, dalaði reyndar dálítið og missti hann fjögur þingsæti frá því í kosningunum 2001 og fékk 52 menn kjörna. Íhaldssflokkurinn bætti hins vegar lítillega við sig og fékk átján menn kjörna á þing, tveimur fleiri en fyrir fjórum árum. Stuðningsflokkar ríkisstjórnarinnar áttu misjöfnu fylgi að fagna. Danski þjóðarflokkurinn bætti fylgi aðeins við sig og fékk 24 menn kjörna, tveimur fleiri en í síðustu kosningum. Kristilegir Demókratar náðu hins vegar ekki tveggja prósenta þröskuldinum og misstu þingsætin sín fjögur. Stjórnarflokkarnir og stuðningsmenn þeirra hlutu því 94 þingsæti af 179, jafnmörg og fyrir fjórum árum síðan. Fylgi Jafnaðamanna dalaði um rúm þrjú prósent og hlutu þeir 46 þingsæti, sex færri en síðast. Þetta er versta gengi flokksins í langan tíma. Mogens Lykketoft, formaður flokksins, segir niðurstöðuna vera langt frá því að vera viðunandi. Hann taki sjálfur fulla ábyrgð á því og segir það ljóst að hann muni ekki leiða flokkinn í næstu kosningum. Hvað fylgi einstakra flokka varðar hlýtur Radikale Venstre að teljast ótvíræður sigurvegari kosninganna. Flokkurinn nær tvöfaldaði fylgi sitt og fjölgaði þingmönnum sínum úr níu í sautján. Vinstri sósíalistar döluðu hins vegar lítillega, hlutu ellefu þingsæti og misstu einn mann. Einingarlistinn bætti hins vegar fylgi sitt, fjölgaði þingmönnum sínum um tvo og fékk sex menn kjörna. Stjórnarandstaðan náði því 81 þingsæti. Grænland og Færeyjar fá tvö þingsæti hvort.
Erlent Fréttir Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Innlent Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Erlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Sjá meira