Lítil hafmeyja í Perú 5. febrúar 2005 00:01
Hún hefur fengið viðurnefnið litla hafmeyjan og hefur heillað landa sína í Perú upp úr skónum. Þessi litla stúlka er í þann mund að leggjast undir skurðhnífinn í aðgerð sem mun breyta lífi hennar. Milagros Cerros er níu mánaða mikið fötluð stúlka. Hún þjáist af því sem er kallað sirenomelia eða hafmeyjarheilkennið og skýringin er augljós. Fætur Milagros eru samvaxnir, engu er líkara en hún sé með sporð. Þetta er afar sjaldgæft og þeir eru fáir sem fæðast með þetta heilkenni sem lifa lengur en eina viku. Reyndar er talið að aðeins þrír í heiminum öllum séu með svipaða fötlun. Nafnið Milagros þýðir enda kraftaverk. Læknar í Perú eru nú að undirbúa skurðaðgerð til að aðskilja fæturna á Milagros en það er í fyrsta sinn sem slíkt er reynt. Þeir eru bjartsýnir á árangur því litla stúlkan er hress og flest líffæri hennar starfa eðlilega. Luis Rubio læknir segir að hreyfigeta stúlkunnar, sálfræðilegt ástand og þroski sé eðlilegur miðað við stúlku á hennar aldri. Það sé gott og muni hjálpa læknunum við aðgerðina. Milagros fer undir hnífinn í lok mánaðarins en aðgerðin fer fram í nokkrum hlutum. Hún verður meira eða minna undir læknishendi næstu árin því eftir að búið er að aðskilja fæturna þarf að snúa þeim fram og laga kynfærin. Sara Arauco, móðir Milagros, segist trúa því að stelpan sín komist í gegnum erfiðleikana og að hún verði alheil og eðlileg.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira