Sömu áhrif áfengis og lesblindu 13. október 2005 15:31
Það hefur sömu áhrif á aksturseiginleika fólks að vera drukkið og að vera lesblint. Þetta kemur fram í rannsókn sem íslenskur prófessor í Noregi gerði og hefur vakið heimsathygli. Hermundur Sigmundsson, sem er prófessor í sálfræði við norska tækni og vísindaháskólann, stýrði þessari rannsókn sem fólst í því prófa aksturhæfileika sautján manna en af þeim voru sex lesblindir. Kannað var hversu fljótt fólkið brást við alls konar uppákomum, aðallega umferðaskiltum sem voru látin birtast hér og hvar. Niðurstaðan sem var birt í gær er sláandi og hefur leitt til þess að Hermundur hefur í allan dag verið í viðtölum við heimspressuna. Í ljós kom að það tók lesblinda fólkið 20-30% lengri tíma en hina að sýna viðbrögð í akstrinum. Til samanburðar er talið að það hægist um 10% á viðbrögðum fólks sem hefur drukkið tvo stóra bjóra og það nægir til þess að fólk megi ekki keyra bíl. Hermundur segir að með rannsókninni leggi hann ekki til að lesblindir hætti að keyra bíl því hann haldi að lesblindir finni lausnir þegar þeir keyri, t.d. að keyra hægar. Sama megi segja um gamalt fólk sem hafi skynjunarvandmál. Hann segist telja mikilvægt fyrir lesblinda og þá sem hafi sjónskynjunarvandamál að þeir veiti því athygli. Talið er að um 60-70% lesblindra eigi í einhvers konar vanræðum með sjónskynjun og það skýrir kannski undantekningarnar sem vissulega eru fyrir hendi. Bent hefur verið á að Jackie Stewart, fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu eitt, sé lesblindur og Hermundur segist viss um að hann hafi haft einhvers konar lausnir á sínum vandamálum og æft akstur mjög mikið. Þannig séu það fleiri hlutir en viðbragðshæfni sem fólk þurfi til að verða gott akstursíþróttafólk. Auk þess sé ekki vitað hvort Stewart hafi tilheyrt þeim 60-70% lesblindra sem glími við sjónskynjunarvanda.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira