Mikil breyting í Miðausturlöndum 28. janúar 2005 00:01
Meiri háttar breyting til batnaðar hefur orðið í samskiptum Ísraels og Palestínu síðustu vikurnar. Ofbeldisverkum hefur snarfækkað og í fyrsta sinn í fjögur ár eru menn vongóðir um friðarhorfur. Þetta virðist nánast of gott til að vera satt. En það er nú engu að síður staðreynd að síðan Mahmoud Abbas tók við embætti forseta í Palestínu hefur mjög margt breyst til batnaðar og hlutirnir virðast farnir að rúlla. Abbas tók af skarið skömmu eftir embættistöku sína og sendi fyrst tvö þúsund palestínska hermenn út á götur herteknu svæðanna til þess að hafa hemil á og koma í veg fyrir árásir öfgahópa. Að því búna hóf hann samningaviðræður um vopnahlé við þessa sömu öfgahópa og hefur haft það erindi sem erfiði að árásum hefur fækkað til muna á Gaza. Í dag var svo komið að Ísraelsstjórn að koma til móts við þennan friðarvilja Palestínumanna. Ísraelski herinn fékk um það skýr fyrirmæli að halda að sér höndum á herteknu svæðunum. Það er meiri háttar stefnubreyting því herinn hefur að undanförnu skilið eftir sig sviðna jörð og varla farið í manngreinarálit í árásum sínum. Gidon Meir hjá ísraelska utanríkisráðuneytinu segir að á næstu dögum verði breytingar á starfsaðferðum hersins. „Á þeim svæðum þar sem stjórnvöld Palestínu munu axla ábyrgð á að stöðva hryðjuverk verður hvort sem er engin þörf fyrir aðgerðir Ísraelsmanna,“ segir Meir. Það slær á gleði manna að í dag voru birt úrslitin í eins konar sveitastjórnarkosningum á Gaza. Hamas-samtökin unnu stórsigur og fengu 65 prósent atkvæða á móti 22 prósentum atkvæða Fatah-samtaka Abbasar. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Vesturlönd sem hafa úthrópað Hamas sem hryðjuverkasamtök. Jafnframt sýnir þetta glögglega hversu mikils fylgis samtökin njóta meðal Palestínumanna sem er kannski engin furða því Hamas hefur um langa hríð haldið uppi allri félagslegri þjónustu fyrir íbúa herteknu svæðanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira