Níu áratugir átaka 27. janúar 2005 00:01
Tortryggni margra Íraka til kosninganna á sunnudag má að hluta rekja til fyrstu kynnanna sem þeir höfðu af yfirráðum vestrænna manna. Þegar vestrænir menn brutu valdhafa á landsvæðinu á bak aftur í fyrri heimsstyrjöld og lýstu sjálfum sér sem frelsurum varð reynslan fljótt sú að þeir skiptu landinu upp eftir eigin hagsmunum og réðu lögum og lofum þar um áratugaskeið. Landsvæðið sem nú myndar Írak og Kúveit var í tæpar fjórar aldir hluti af Ottómanaveldinu, hvers valdamiðstöð var í Tyrklandi. Bretar brutust hins vegar til valda þar á síðari hluta fyrri heimsstyrjaldar þegar þeir lögðu landið undir sig og hröktu Tyrki á brott en Tyrkir höfðu stillt sér upp við hlið Þjóðverja og Austurríkis-Ungverjalands, gegn Bretum og bandamönnum þeirra í stríðinu. Hagsmunir Breta réðu Þrátt fyrir að Bretar hafi kynnt sig sem frelsara þegar þeir ráku Tyrki á brott varð fljótt ljóst að þeir ætluðu sér ekki að láta Írökum það eftir að stjórna sér að vild. Þeir tóku þrjú héruð sem áttu lítið sameiginlegt og steyptu þeim saman í eitt land, verndarsvæði Breta. Að auki settu þeir Kúveit á fót sem sjálfstætt ríki til að eiga auðveldara með að ráða olíuauðlindum á svæðinu. Að auki leiddu Bretar til valda menn sem voru þeim þóknanlegir, súnní-múslima sem höfðu reyndar þegar fengið forréttindi umfram aðra í valdatíð Ottómana. Konungur landsins var sóttur til útlanda, Sádi-arabinn Faysal prins sem hafði meðal annars starfað með hinum goðsagnakennda Arabíu-Lárens, T. E. Lawrence, í baráttu araba gegn Tyrkjum á tímum fyrri heimsstyrjaldar. Í kjölfarið fylgdi uppreisn heimamanna sem Bretar börðu niður af mikilli hörku. Þetta hafa margir Írakar rifjað upp í kjölfar innrásar Bandaríkjanna og bandamanna þeirra og eru fjarri því allir bjartsýnir á að efndir fylgi orðum innrásarmanna. Sjálfstæði háð Bretum Árið 1932 fékk Írak svo sjálfstæði og Faysal I var krýndur konungur. Bretar höfðu eftir sem áður töglin og hagldirnar í landinu, reistu þar herstöðvar og dældu upp olíu en ríkisstjórnar þeim hliðhollar sátu að völdum. Hagur Íraka batnaði lítið enda höfðu þeir lítið að segja um stjórn landsins og Bretar tryggðu sér yfirráð yfir olíuauðnum. Sjötti áratugurinn einkenndist af miklum umbrotum í Mið-Austurlöndum þegar þjóðernisöfl með Nasser Egyptalandsforseta í broddi fylkingar tóku að brjótast undan oki Vesturlanda. 1958 frömdu herforingjar í Írak valdarán, tóku konunginn og forsætisráðherrann af lífi og settust sjálfir í valdastólana. Fimm árum síðar rændi Baath-flokkurinn, sem þá var tiltölulega nýstofnaður, völdum og í kjölfarið voru þúsundir kommúnista drepnir. 1965 var enn eitt valdaránið framið og 1968 það þriðja en þá náði Baath-flokkurinn völdum í annað og síðasta sinn. Blóðug valdatíð Saddams Næstu miklu tímamót urðu þegar Saddam Hussein komst til valda árið 1979. Eftir það má segja að saga Íraks sé stöðug átakasaga og var hún ekki friðsöm fyrir. Skömmu eftir valdatöku Saddams fyrirskipaði hann innrás í Íran sem þá var í sárum eftir uppreisn sem leiddi klerka úr röðum sjía-múslima til valda. Saddam taldi Íran auðvelda bráð sem gæti litla vörn sér veitt og því hægt að ná auðugum olíulindum Írana undir íraskt vald. Reyndin varð önnur og í kjölfarið fylgdi blóðugt og mannskætt stríð sem stóð stærstan hluta níunda áratugar síðustu aldar. Að lokum þurfti þrýsting alþjóðasamfélagsins til að Íranar féllust á vopnahlé. Stríð þjóðanna frá 1980 til 1988 kostaði hálfa til eina milljón manna lífið og skildi fjárhag Íraks eftir í rjúkandi rúst. Til að bæta úr því ákvað Saddam að halda í aðra herför, nú gegn smáríkinu Kúveit sem hann sakaði um að stela olíu úr sameiginlegum olíulindum ríkjanna. Eftirleikurinn varð sá að alþjóðlegar hersveitir hröktu innrásarherinn á brott 1991 og í kjölfarið fylgdu refsiaðgerðir og viðskiptabann sem ollu miklum búsifjum fram að innrásinni í Írak í mars 2003. Vopnum beitt á eigin þjóð Saddam Hussein var aldrei feiminn við að beita vopnum á eigin þjóð, hvort sem var í hreinsunum innan Baath-flokks síns eða árásum á aðra landsmenn. Mesta athygli vakti sennilega efnavopnaárásin á kúrdíska bæinn Halabja árið 1988. Þá létust um fimm þúsund bæjarbúar þegar herferð íraskra stjórnvalda gegn Kúrdum komst í hámæli vegna fréttamynda úr þorpinu sem birtust í fjölmiðlum um heim allan. Ekki urðu andstæðingar Saddams síður illa úti þegar hersveitir hans hrökkluðust frá Kúveit. Uppreisnir Kúveita í norðri og sjía í suðri voru barðar niður af mikilli grimmd og töldu einkum sjíar sig illa svikna af bandamönnum sem höfðu kvatt þá til uppreisnar en veittu þeim enga aðstoð. Margar þjóðir Eitt af þeim vandamálum sem Írakar standa frammi fyrir er hversu sundurleit þjóðin er, ef þjóð skyldi kalla. Súnní-múslimar, sem telja innan við þriðjung þjóðarinnar, og enn færri þegar Kúrdar eru undanskildir, hafa löngum haft mun meiri áhrif en fjöldi þeirra segir til um. Ottómanar veittu þeim réttindi umfram aðra þjóðflokka, Bretar leiddu þá í öndvegi og í valdatíð Saddams héldu þeir um völdin. Súnní-múslimar hafa lengi verið fjölmennastir í Írak en voru tortryggðir af valdhöfum, höfðu lítil áhrif og hafa löngum orðið fyrir barðinu á stjórnvöldum eða risið upp gegn þeim. Þetta breytist í kosningunum á sunnudag þegar fylkingum þeirra er spáð yfirburðasigri. Kúrdar töldu undir lok fyrri heimsstyrjaldar að þeirra biði sjálfstætt ríki líkt og Bretar lofuðu. Bretar sviku hins vegar loforðið og málamiðlunin var sjálfstjórn sem Kúrdar fengu innan íraska ríkisins en var að vísu ekki virt fyrr en á síðasta áratug síðustu aldar þegar stjórn Saddams Husseins hafði ekki tök á að berja kröfur þeirra niður. Fleiri þjóðarbrot er að finna í Írak. Kristnir Assyríumenn eru til staðar þó þeim hafi fækkað. Gyðingar skiptu tugum þúsunda fram undir miðja síðustu öld þegar þeir fóru að flytjast til Ísraels í miklum stíl. Fyrr í mánuðinum bárust svo fréttir af að annar tveggja gyðinga í landinu hefði látist og því væri aðeins einn gyðingur eftir í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira