Börn í Asíu þurfa mikla hjálp 26. janúar 2005 00:01
Yngstu fórnarlömb hamfaranna í Asíu þurfa mikla hjálp, bæði andlega og líkamlega. Áhersla er lögð á að koma þeim til hjálpar en að gleyma ekki tugmilljónum annarra barna um allan heim, sem búa við bág kjör. Í 33 löndum er líf milljóna barna í bráðri hættu. Víða á flóðasvæðunum hófst skólastarf á ný í dag, mánuði eftir hamfarirnar. Það er sagt gott fyrir börnin að koma aftur í skólann, hitta þá vini sína sem eftir eru, tala um reynslu sína og fá einhverja reglu á lífið. Sum þeirra virðast ótrúlega brött, eins og Romi Saputra í Aceh-héraði í Indónesíu. Hann segist vilja verða forseti svo hann geti byggt hús handa öllum. Talið er að 45 þúsund skólabörn hafi farist í héraðinu og þau sem eftir lifa verða lengi að vinna úr áfallinu sem þau urðu fyrir. Á Srí Lanka er svipaða sögu að segja, en þar er talið að fjórir af hverjum tíu sem fórust hafi verið börn. Eftirlifendur standa margir hverjir eftir sem munaðarleysingjar. Þeirra á meðal er Chalom. Hún missti móður sína, ömmu og tvo bræður og þá eyðilagðist hús fjölskyldunnar og hún missti allt sem hún átti. Örlög þessara barna eru grimmileg en því miður eru þau ekki einu börnin sem þurfa á hjálp að halda. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sendi í dag frá sér árlega skýrslu og þar kemur fram að börn í 33 löndum þurfa á hjálp að halda í skyndingu. Telja sérfræðingar barnahjálparinnar þörf á 48 milljörðum króna til að aðstoða þau. Meirihluti þessara barna býr í Afríku og þó að örlög þeirra hafi ekki hlotið mikla athygli er aðkallandi að bregðast við vanda þeirra líka.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Sjá meira