Vísindamenn í skýjunum 15. janúar 2005 00:01
Yfirborð Títans, tungls Satúrnusar, er ljósappelsínugult og þakið þunnu lagi metans. Þetta blasti við vísindamönnum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar þegar þeir sökktu sér niður í myndir og önnur gögn sem geimfarið Huygens sendi frá Títan, gögn sem það safnaði þegar það sveif til jarðar og eins þegar það var lent á tunglinu. Vísindamenn voru að störfum alla fyrrinótt við að fara yfir gögn og skerpa myndir. Þeir eru hæstánægðir með árangurinn. "Tækin hafa virkað frábærlega," sagði John Zarnecki, sem hefur yfirumsjón með tækjum sem notuð eru á yfirborðinu. "Við getum ekki fundið merki þess að nokkur gögn vanti. Samskiptatengingin og gæði gagnanna voru stórkostleg." Ein mynd, sem tekin var í sextán kílómetra hæð yfir tunglinu, sýndi dökkar útlínur sem gáfu til kynna farvegi þar sem vökvi hefði streymt inn á dökkt svæði sem talið er haf myndað úr fljótandi metangasi. Inni á milli voru dekkri svæði sem kunna að vera eyjar. "Það er næstum ómótstæðilegt að ímynda sér að dökka svæðið sé einhvers konar framræsluskurðir, að við séum að horfa upp á einhvers konar strandlengju," sagði Marty Tomasku, yfirmaður myndatökudeildarinnar, en tók fram að vísindamennirnir vissu enn ekki hvort þar væri einhvern vökva að finna. YFIRBORÐ TÍTANS. Yfirborð Títans er dekkra en menn áttu von á, það er blanda frosins vatns og kolvatnsefna.
Erlent Fréttir Mest lesið Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Innlent Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Erlent „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Veður „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Erlent Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Innlent Fleiri fréttir „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler Sjá meira