Erlent

Brýnt að takast á við sálræna áfallið

"Við stöndum frammi fyrir stöðu sem gerir mjög miklar kröfur til okkar og ég er ekki viss um að við ráðum við þær að svo stöddu. En við gerum okkar besta," sagði Marc Danzon, svæðisstjóri Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu, um þau sálrænu áföll sem fólk í ríkjunum þar sem flóðbylgjan gekk yfir varð fyrir. Heilbrigðisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins lýstu í gær miklum áhyggjum af því hvernig sálarheill íbúa flóðasvæðanna yrði tryggð, einkum þó barna. Þetta var niðurstaðan af fundi þeirra með fulltrúum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Ráðherrarnir sendu frá sér aðgerðaáætlun um hvernig veita ætti fólki á hamfarasvæðunum sálræna aðstoð. "Mikilvægast er að takast á við áfallið sem börnin hafa orðið fyrir," sagði Marc Danzon og kvað það ekki hafa gerst frá lokum seinni heimsstyrjaldar að jafnmargir hefðu orðið fyrir svo miklu áfalli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×