Sport

Viktor Unnar hjá Ipswich Town

Viktor Unnar Illugason úr 3. flokki Breiðabliks er til reynslu hjá enska félaginu Ipswich Town um þessar mundir. Hann fékk að spreyta sig í leik gegn U-16 ára liði West Ham en varð frá að víkja eftir að hafa rotast í skallaeinvígi. Þá lék Viktor einnig með gegn U-15 ára liði West Ham og skoraði þar jöfnunarmarkið þar sem leiknum lyktaði 2-2. Viktor mun leika með liðinu gegn Chelsea á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×