Stóri draumurinn og launaþróun Helgi Seljan skrifar 18. maí 2005 00:01
Fréttaskýring - Helgi Seljan Bechtel greiðir lægri laun en Impregilo - Mun stóri draumur Austfirðinga snarlækka laun á vinnumarkaði hérlendis? Þó aðstandendum bandaríska verktakafyrirtækisins Bechtel hér á landi sé samanburður við ítalska kollega sína á Kárahnjúkum mjög á móti skapi kemur Bechtel þó verr út í samaburði ef laun eru borin saman. Verkalýðsmenn ganga jafnvel svo langt að segja bæði þessi fyrirtæki koma til með að lækka laun á íslenskum vinnumarkaði í kjölfarið. Bechtelmenn hafa einsett sér að greiða laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum og ráða til sín milliliðalaust útlendinga, án milligöngu starfsmannaleiga. Þessu fagna forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar, enda barátta þeirra við starfsmannaleigur tekið stóran tíma frá því framkvæmdir komust á fullt við Kárahnjúka. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Lágmarkslaun lík þeim sem Bechtel hyggst greiða starfsmönnum sínum eru enda talsvert mikið lægri en almennt gerist á sambærilegum verktakamarkaði eystra og annars staðar á landinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins að sé meginástæða þess að íslendingar séu ekki fleiri en raun ber vitni - og verði jafnvel færri en áætlanir Bechtel gera ráð fyrir. Forsvarsmenn ameríska verktakarisans Bechtel hér á landi áætla að um 1600 manns muni vinna að byggingu álvers Fjarðaáls um þetta leyti á næsta ári. Starfsmenn þess eru nú í óðaönn að koma upp vinnubúðum rétt innan þorpsins á Reyðarfirði og samkvæmt upplýsingum frá Bechtel eru nú 300 starfsmenn mættir til vinnu á Reyðarfirði og mun þeim fjölga jafnt og þétt næstu mánuði. Að sögn Björns Lárussonar, upplýsingafulltrúa Bechtel á Íslandi, eru íslenskir iðnaðar- og verkamenn í kringum 80% af heildarfjölda starfsmanna en afgangurinn, 20%, eru íslendingar. Björn segir að í áætlunum fyrirtækisins sé þó gert ráð fyrir að þetta hlutfall snúist við þegar fullmannað verður á svæðinu. Björn segir að illa hafi gengið að fá íslendinga í vinnu hjá fyrirtækinu, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið auglýst eftir fólki. Pólverjar munu því verða meginþorri þeirra sem byggja munu langþráða álverksmiðju Austfirðinga eins og gert var ráð fyrir, en fjöldi þeirra talsvert meiri en ráð var fyrir gert. Samráðshópur verkalýðsfélags Reyðarfjarðar, AFLs Starfsgreianfélags, Starfsgreinasambandsins og Bechtel mun hittast reglulega meðan á framkvæmdum stendur. Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, á sæti í samráðshópnum. Hann telur áætlanir Bechtel um fjölda íslenskra starfsmanna hjá fyrirtækinu vera of háar miðað við það kaup sem í boði er, og er talsvert lægra en það sem gengur og gerist í samskonar vinnu þar sem markaðslaun, umtalsvert hærri en svokallaðir strípaðir taxtar eins og Bechtel greiðir, tíðkast. Í viðtali við Talstöðina sagði Skúli það jafnframt umhugsunarefni fyrir aðila vinnumarkaðarins að þessi tvö risavöxnu verkefni, byggin Kárahnjúkastíflu og álvers Fjarðaáls, verði til þess að lækka þau laun sem hingað til hafa tíðkast á vinnumarkaði hérlendis.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Sjá meira